Ég fæddist 27. Júní kl. 12:38 á Landsspítalanum en átti ekki að koma í heiminn fyrr en 7.Júlí en ég var eitthvað að flíta mér og gékk fæðingin eins og í sögu og er ég lítil prinsessa sem á að heita Margrét Lilja í höfuðið á móður ömmu minni sem hét Margrét en hún lést nokkrum dögum áður en ég fæddist. Ég var 2.835 gr og 48 cm við fæðingu.
Mamma mín heitir Þórhildur Björk Sigurðardóttir en er yfirleitt kölluð Tóta (79) og Pabbi minn heitir Svanur Freyr Hauksson(70) Ég á 4 systkini elsta er Sunna Dís(89) hún býr í Portugal með manninum sínum og 2 synum Rafael(07) og Gabriel (09) svo er það Sigríður Ásta (93) svo er það Elín María (01) svo er það Birgir Snær (04) Ég bý með Mömmu,Pabba,Birgi Snæ,Sigríði og kærastanum hennar á Sauðárkrók Ég er á Leikskóla deildin mín heitir Kanínudeild og ég er að verða 3 ára algjör Prinsessa er rosa dugleg stelpa soldið síðan ég hætti með bleiju pissa aldrey í puxurnar Mamma og Pabbi eru rosa stolt af mér :) En er algjör frekju mús eins og Mamma segir hehe. En takk fyrir að skoða síðuna mína og endilega kvittið í gestabókina svo við sjáum hverjir kíkja Takk fyrir :)
Margrét:Margrét er myndað af forliðnum "mar" sem merkir sær og viðliðnum "grét" sem merkir tár. Margrét merkir því tár hafsins, -perla
Lilja:Nafnið Lilja er dregið af jurtaheitinu Lilja
Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.
Þetta kerti logar fyrir Ömmur mínar og Afa minn.
Mamma mömmu minnar hét Margrét Svavarsdóttir (Maddý) og var fædd 9 ágúst 1951 en hún lést 21.júní 2007. Mamma og Pabbi Pabba míns þau hétu Ástrós. F. 28.07.52 D. 05.09.04 og Haukur Reynir Pálsson. f.20.12.49. D. 03.07.98.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín. Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
Mamma er Konan
Sem kemur manni í heiminn
með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir
og veitir alla þá hlýju og ástúð
sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar
með útrétta hjálparhönd
þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt
og gleðst með manni
þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi.
Pabbi er Maðurinn
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist
að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður
en það tekur hann bara nokkra daga
að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn
skuli ekki getað sofið alla nóttina
og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri
og þá er hægt að fara að leika við mann
og kenna manni ýmislegt
þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar
með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi.


